Fyrsti fundur ársins hjá Náum áttum, sem haldin verður á Grand hótel miðvikudaginn 21. janúar kl. 8.15-10.00, veltir því upp hvort snjalltæki séu að breyta skólastarfi?
Fundurinn veltir upp þeirri spurningu hvort snjalltækjanotkun barna og ungmenna sé að breyta skólastarfi? Náum áttum er forvarna- og fræðsluhópur um velferð barna og unglinga.
Á fundinum halda erindi:
- Björn Rúnar Egilsson,verkefnastjóri hjá Heimili og skóla og SAFT, heldur erindi undir yfirskriftinni „Ég þarf bara að safna hundrað vinum til þess að verða frægur“
- Linda Heiðarsdóttir,aðstoðarskólastjóri Laugarlækjaskóla, fjallar um snjalltæki og skólann.
- Sigurður Haukur Gíslason, grunnskólakennari, heldur erindi sem heitir „Við þurfum að kenna börnum og ungmennum stafræna borgarvitund.
Fundarstjóri verður Sólveig Karlsdóttir,verkefnastjóri hjá Heimili og skóli og SAFT, en hún mun stjórna umræðum eftir að erindi hafa verið flutt. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að fólk skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 2.100 krónur en innifalið í því er morgunverður. Fundirnir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir.
Auglýsing fyrir morgunverðarfund Náum áttum 29. október 2014.