Ertu klár? Umræðufundur fyrir foreldra um námsmat

Skóli og frístund

""
Samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík standa fyrir umræðu- og fræðslufundi um námsmat í elstu bekkjum grunnskólans. 
Vilt þú vita meira um nýtt einkunnakerfi A,B,C,D,  nýtt námsmat sem allir grunnskólar taka upp núna vorið 2016 ?  Hefur þú áhyggjur af því hvernig staðið verður að námsmati í vor, hvernig hæfni nemenda verður metin?  Er unglingurinn þinn byrjaður að velta þessu fyrir sér ?  Hér gefst tækifæri til að hlýða á erindi, bera upp fyrirspurnir og taka þátt í umræðum. 
 
Umræðu og fræðslufundur SAMFOKS verður haldinn fimmtudaginn 12. nóvember í Þróttaraheimilinu við Engjaveg 7 og hefst kl. 19:30.
 
Dagskrá
Ávarp: Birgitta Bára Hassenstein,formaður SAMFOK

Erindi: Gylfi Jón Gylfason, sviðsstjóri matssviðs hjá Menntamálastofnun, Jón Pétur Zimsen og

Linda Heiðarsdóttir skólastjórnendur í Réttarholtsskóla, Brynja Sveinsdóttir og Snorri Marteinn Sigurðarson nemendur í Ingunnarskóla



Kaffihlé og pallborðsumræður



Í pallborði eru:

Anna Steinunn Valdimarsdóttir kennari í Laugalækjarskóla

Guðlaug Sturlaugsdóttir skrifstofustjóri grunnskólaskrifstofu SFS

Gylfi Jón Gylfason sviðsstjóri matssviðs Menntamálastofnunar

Hjalti Jón Sveinsson formaður félags skólameistara í framhaldsskólum

Jón Pétur Zimsen skólastjóri Réttarholtsskóla

Snorri Marteinn Sigurðarson og Brynja Sveinsdóttir nemendur í Ingunnarskóla
 
Fundarstjóri er Ingvar Sigurgeirsson prófessor við Kennaradeild Háskóla Íslands