Enn betri Laugardalur

Íþróttir og útivist Skipulagsmál

""

Laugardalurinn er ein af perlum borgarinnar, þangað sækja borgarbúar í margs konar útivist og íþróttir. Þar er einnig hægt að sækja sér fræðslu í Grasagarð Reykjavíkur. 

„Markmiðið í Laugardalnum er fyrst og fremst að stuðla að frekari uppbyggingu fyrir íþrótta- og tómstundastarf en jafnframt að opna garðinn eins og kostur er með auknum gróðri og gerð stíga og útivistarsvæða, sagði Ólöf Örvarsdóttir sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar á íbúafundi um Laugardalinn sem Íbúasamtök Laugardals og Hverfisráð Laugardals héldu saman 23. mars.

Vagga íþrótta og heilbrigðis

Fundurinn var fjölmennur og voru gestir áhugasamir enda Laugardalurinn mikilvægur fyrir alla borgarbúa. „Styrking Laugardalsins er til þess fallin að gera dalinn enn betri, fallegri, heilnæmari og öruggari,“ sagði Ólöf sem fór yfir sögu skipulagsins í Laugardalnum á fundinum og benti m.a. á að eldri hugmyndir um byggingaframkvæmdir hefðu hopað  fyrri stærra grænu svæði í nýju aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030.

Fólk er sammála um að Laugardalurinn sé vagga íþrótta og heilbrigðis í Reykjavik, heimkynni húsdýra og sérstakra plantna sem finna má á því safni sem Grasagarðurinn er og að dalurinn sé mikilvægt grænt lunga í sífellt stækkandi borg.

Ekki stendur til að skerða þetta mikilvæga svæði.

Ólöf leiðrétti á fundinum þann misskilning sem borið hefur á um að byggja eigi meðfram Suðurlandsbraut. „Ekki má ganga á græn svæði borgarinnar samkvæmt aðalskipulaginu vegna þéttingar byggðar,“ sagði hún þegar spurt var um mögulegar byggingar ef Suðurlandsbrautin yrði hönnuð upp á nýtt.

Grasagarður Reykjavíkur

Ólöf leit til framtíðar Laugardals og sagði að nýverið hefði verið samþykkt breyting á skipulagi við Grasagarð Reykjavíkur en þangað fluttist frístundaheimili sem leysir einnig húsnæðisvanda skólanna í kring. Þetta sambýli grasagarðs og frístundaheimilis hefur gengið afar vel og nú stendur til að bæta lýsingu gönguleiða og fara í ýmsar lagfæringar á þeim. Hún sagði að við tjaldmiðstöðina væru líka fyrirhugaðar breytingar eða stækkun á þjónustumiðstöð.

Húsdýragarðurinn stækkar

Töluverðar breytingar eru fyrirhugaðar í húsdýragarðinum og nýverið fékkst heimild til að bjóða út framkvæmdir þar. Það á að byggja móttökuhús, gripahús fyrir svín og náttúru-og fræðsluhús. Húsdýragarðurinn er algjörlega til fyrirmyndar í sínum rekstri, að mati Ólafar, og stendur sig mjög vel í verkefninu Græn skref í starfssemi Reykjavíkurborgar.



Ólöf sagði að ráðast þyrfti í ýmsar framkvæmdir og lagfæringar á frjálsíþróttaleikvanginum m.a. vegna Smáþjóðaleikanna 2015. Framkvæmdir hófust þar sumarið 2013 og er haldið áfram 2015. Áætlaður heildarkostnaður er um 120 milljónir króna.

Samráð við íbúa um framtíðina

Hún sagði að engar aðrar breytingar á Laugardal væru í farvatninu og ekkert deiliskipulag áformað þar á næstu árum. „Það á ekki að koma nálægt dalnum sjálfum, trén sem flestir þekkja við Suðurlandsbraut eru markalínan. En sem endranær er ákveðin uppbygging heimiluð í kringum íþróttamannvirkin og á Suðurlandsbrautinni, náist samningar við alla þá fjölmörgu hagsmunaaðila sem að málinu þyrftu að koma,  en ekki í dalnum sjálfum,“ sagði hún.

Í aðalskipulagi  Reykjavíkur er skilgreind mjó ræma við Suðurlandsbrautina sem miðsvæði og þar gætu komið lágreist hús sambærileg þeim sem eru við Engjateig. Ef vilji væri fyrir því þyrfti að ná samkomulagi við fjölmarga hagsmunaaðila og deiliskipuleggja með tilheyrandi samráði við íbúa.

Áherslan í aðalskipulagi Reykjavíkur er á gæði byggðar og á aukna þéttingu. Ólöf sagði að við slíkar áherslur væru grænu svæðin mikilvægari en nokkru sinni enda segir skýrt í aðalskipulaginu að ekki verði gengið á græn svæði heldur svokölluð grá eða brún – sem er endurnýting vannýttra svæða.

Um fundinn og netið

Fundurinn var haldinn mánudaginn 23. mars kl. 19:30 í Laugabóli, félagshúsi Þróttara og héldu Íbúasamtök Laugardals og Hverfisráð Laugardals fundinn. Framsöguerindi fluttu: Björn Jón Bragason, sagnfræðingur: „Laugardalur fyrr og nú“, Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis-og skipulagssviðs „Umhverfi og skipulag í Laugardal“ og Lilja Sigrún Jónsdóttir,í stjórn Íbúasamtaka Laugardals. Heiðar Ingi Svansson formaður hverfisráðs var fundarstjóri. Einnig sátu í pallborði Hjörtur Þorbjörnsson forstöðumaður Grasagarðs Reykjavíkur, Tómas Ó. Guðjónsson forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og Ótthar S. Edvardsson framkvæmdastjóri Þróttar.

Fundurinn var sendur út hjá netsamfelag.is og má sjá upptökuna þar.

Tengill

Grasagarður Reykjavíkur

Fjölskyldu- og húsdýragarður