Á fundi leikskólastjóra borgarinnar í morgun var Elín Ásgrímsdóttir fráfarandi leikskólastjóri Fífuborgar kvödd eftir 23 ára starf.
Elín hefur unnið hjá Reykjavíkurborg frá árinu 1972 og átt afar farsælan feril sem leikskólastjóri í Fífuborg í tæp 23 ár.
Leikskólastjórar kvöddu hana á fundi sínum í morgun og þökkuðu henni störf í þágu reykvískra barna. Á meðal þeirra voru þrjár samstarfskonur sem starfað hafa með henni sem aðstoðarleikskólastjórar í Fífuborg; Ásgerður Guðnadóttir, Brynja Benediktsdóttir og Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir.
Elínu fylgja þakkir fyrir vel unnin störf og óskir um farsæld um ókomna tíð.