Eitthvað illt er á leiðinni – hrollvekjusafn nítján ungra höfunda

Skóli og frístund

""

Safn hryllingssagna 8-10 barna á frístundaheimilunum Draumalandi, Eldflauginni og Halastjörnunni kemur út um helgina. 

Laugardaginn 18. apríl kemur út hrollvekjusafnið Eitthvað illt á leiðinni er. Bókin er er afrakstur þrotlausrar vinnu nítján rithöfunda, sem hafa í vetur legið yfir drauga- og hryllingssögum og horfst í augu við sinn mesta ótta og martraðir til að skapa alvöru hrollvekjur, sem fá hárin til að rísa. Bókin er ekki síst merkileg fyrir það að höfundarnir eru á aldrinum 8-10 ára og unnu sögurnar á ritsmiðjum á frístundaheimilunum Draumalandi, Eldflauginni og Halastjörnunni.

Öllu var til tjaldað til að færa nýrri kynslóð rithöfunda bókina í glæsilegum búningi og voru því fengir til nokkrir af færustu myndskreytum landsins til að myndskreyta sögurnar. Þeir eru:

Erla María Árnadóttir, Fanney Sizemore, Inga María Brynjarsdóttir, Linda Ólafsdóttir, Sigmundur Breiðfjörð, Sigrún Eldjárn og Þórey Mjallhvít.

Formála bókarinnar skrifar hiðnmargverðlaunaða skáldkona og draugaséní Gerður Kristný.

Höfundar hryllingssagnanna eru:

Amelía Eyfjörð Bergsteinsdóttir,

Ana Kokotovic,

Bernardo Tino Neri Haensel,

Erlen Isabella Einarsdóttir,

Freyja Gyðudóttir Gunnarsdóttir,

Gunnlaugur Jón Briem,

Hrafn Sverrisson,

Hrafnhildur Oddgeirsdóttir,

Iðunn Gróa Sighvatsdóttir,

Marta Björg Björnsdóttir,

Matthea Júlíusdóttir,

Ólína Stefánsdóttir,

Ronja Björk Bjarnadóttir

Sara Hjördís Guðnadóttir,

Steinunn Margrét Herbertsdóttir,

Svanhildur Dóra Haraldsdóttir,

Tinna Tynes,

Úlfur Bjarni Tulinius og

Víkingur Breki Sigurðarson.

Bókin verður fáanleg í Bókabúð barnanna í Iðnó á Barnamenningarhátíð og í almennum bókabúðum í kjölfarið.