Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur um allt land í dag, 6. febrúar. Þetta er í áttunda skiptið sem haldið er upp á daginn, en þennan dag árið 1950 var stofnað stéttarfélag leikskólakennara.
Ýmislegt verður gert til hátíðabrigða í leikskólum borgarinnar í tilefni dagsins og verður gleðin leiðarljós yngstu borgarbúanna í ýmsum uppákomum í öllum hverfum.
Í leikskólanum Klettaborg hefur verið sett upp sýning í máli og myndum um vettvangsferðir elstu barnanna og er hún opin öllum áhugasömum.
Elstu börnin í leikskólanum Hofi ákváðu að fagna deginum með andlitsmálningu og balli og settu að auki upp myndlistarsýningu á girðingunni umhverfis leikskólann.
Líf og fjör var á vinafundi í leikskólanum Hálsaskógi í morgun þar sem öll börnin komu saman og mynduðu regnboga með marglitum klæðnaði - og börnin í Austurborg sýna í dag verk sín í verslunarmiðstöðinni Austurveri og syngja fyrir gesti og gangandi. Einnig fer hópur Austurborgarbarna á fund eldri borgara með söng og skemmtan í tilefni dagsins. Aðrir leikskólar láta ekki sitt eftir liggja og sýna þeir metnaðarfullt fagstarf sitt með margvíslegum hætti.
Til hamingju með daginn öll leikskólabörn og starfsfólk leikskólanna!