COUNTER-MAPPING AND THE AVANT-GARDE – erindi í Háskóla Íslands

Mannlíf Menning og listir

""

Á morgun, þriðjudaginn 19. maí kl. 12, heldur bókmenntafræðingurinn og kennarinn Stephen Voyce hádegiserindi í Háskóla Íslands sem hann nefnir Counter-Mapping and the Avant-Garde. 

Stephen kemur hingað frá Iowa City í Bandaríkjunum, sem er ein af Bókmenntaborgum UNESCO líkt og Reykjavík. Hann kennir við Háskólann í Iowa og stýrir margmiðlunarsetrinu Fluxus Digital Collection.

Allir þeir sem hafa áhuga á margmiðlun lista, framúrstefnu, myndlist, orðlist og óhefðbundinni kortagerðalist ættu ekki að láta þessa dagskrá fram hjá sér fara.

Ástráður Eysteinsson, prófessor og forseti Hugvísindasviðs HÍ, stýrir dagskránni. Hún verður í stofu 101 í Odda milli kl. 12 - 13. Allir eru velkomnir.



Að erindinu standa Bókmenntaborgin Reykjavík og Hugvísindasvið Háskóla Íslands.