Brúarskóli fékk í vikunni góða gjöf þegar Skeljungur færði skólanum 10 nýjar ipad spjaldtölvur. Á þessu skólaári er unnið að því að nýta hina fjölbreyttu möguleika spjaldtölvunnar í vinnu með nemendum, m.a. með því að kenna þeim einfalda forritun.
Björk Jónsdóttir skólastjóri Brúarskóla og Árni Einarsson aðstoðarskólastjóri tóku við gjöfinni fyrir hönd skólans og þökkuðu Valgeiri Baldurssyni forstjóra Skeljungs fyrir hana.
“Við erum afar þakklát og hér í húsi ríkir mikil gleði vegna gjafarinnar“ sagði Björk skólastjóri meðal annars við það tækifæri.
"Þrátt fyrir oft á tíðum krefjandi aðstæður er starf Brúarskóla byggt upp á gleði, jákvæðni, virðingu og ábyrgð sem ætti að geta verið innblástur fyrir alla vinnustaði. Hluti af stefnu Skeljungs er að styðja við bakið á margvíslegum samfélagslegum verkefnum og þykir okkur vænt um að geta orðið Brúarskóla að liði með þeim hætti sem nýtist bæði nemendum og kennurum í námi og starfi," sagði Valgeir Baldursson forstjóri Skeljungs.
Brúarskóli er skóli fyrir börn sem eiga í alvarlegum hegðunar- eða félagslegum erfiðleikum. Skólinn er tímabundið skólaúrræði og sér jafnframt um ráðgjöf til grunnskóla vegna einstakra nemenda með samskonar erfiðleika.