Breyttar reglur um auglýsingar í skóla- og frístundastarfi í kynningu

Skóli og frístund

""
Starfshópur hefur skilað tillögu að nýjum reglum.  
Á fundi skóla- og frístundaráðs 25. nóvember voru kynntar nýjar reglur um auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi, en starfshópur hefur síðastliðið ár verið að endurskoða þær. Ákveðið var á fundi ráðsins að leita eftir umsögn hjá ýmsum aðilum, m.a. umboðsmanni barna, íþróttafélögum, foreldrasamtökum, skólastjórnendum og Bandalagi íslenskra listamanna, áður en breyttar reglur verði samþykktar.
 
Ástæða þótti til að endurskoða reglurnar til að greiða fyrir kynningu á æskulýðs-, íþrótta- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga. Einnig þótti heppilegt að aðgreina reglu um gjafir til starfsstaða annars vegar og gjafir til barna til einkaeignar hins vegar.
 
Samkvæmt tillögu að breyttum reglum geta starfsstaðir þáð gjafir telji stjórnandi þær hafa fræðslu- og forvarnargildi og að gjöfin sé ekki merkt kostunaraðila. Óheimilt er hins vegar að dreifa gjöfum, sem ætlaðar eru börnum til einkaeignar,  í skipulögðu skóla- og frístundastarfi. Stjórnanda er hins vegar heimilt í samráði við foreldraráð leikskóla eða skólaráð grunnskóla og foreldrafélag að veita utanaðkomandi aðilum leyfi til að nýta húsnæði starfsstaðar eftir að formlegu starfi lýkur til að dreifa gjöfum sem ætlaðar eru börnum til einkaeignar í fræðslu- og forvarnarskyni.