Breytingar á aðalskipulagi vegna kirkjugarðs
Fyrirhuguð breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010 - 2030. Nýr kirkjugarður.
Þann 9. apríl samþykkti Borgarráð Reykjavíkur verkefnislýsingu vegna fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010 - 2030, vegna nýs kirkjugarðs í Reykjavík. Með vísan til 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana er verkefnislýsingin lögð fram til kynningar og umsagnar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.
Tengill
Verkefnislýsing - kirkjugarðar.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12 - 14, 105 Reykjavík, usk@reykjavik.is