Vegna óveðurs sem nú geisar á höfuðborgarsvæðinu hefur verklag um röskun á skólastarfi verið virkjað.
Börn eru örugg í skólum og frístundaheimilum. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að tryggja að börn þeirra verði sótt í skólana/frístundaheimilin þegar veður og færð gefur möguleika á því. Skólar hafa verið beðnir um að tryggja að börn yfirgefi ekki skólana nema í fylgd fullorðna.
Sjá verklag um röskun á skólastarfi.