Börn og kosningaréttur

Mannlíf Mannréttindi

""

Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar heimsótti Laugarnesskóla í morgun og tók þátt í morgunsöng með nemendum skólans að því loknu ræddi hún um réttindin í samfélaginu. Heimsóknin er liður í samstarfi Barnamenningarhátíðar, Reykjavík bókmenntaborg og 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi en unnið verður að verkefni um réttindin í samfélaginu í öllum grunnskólum borgarinnar í tengslum við Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2015.

Sóley ræddivið börnin á sal um kosningaréttinn og mikilvægi þess að allar raddir í samfélaginu fái að heyrast. Þá fór hún inn í stöfu hjá 4. S þar sem umræður héldu áfram og rætt var um hin ýmsu málefni sem tengjast daglegu lífi barnanna og rétt þeirra til þátttöku í samfélaginu. Heimsóknina má sjá á meðfylgjandi myndbandi.

Innan grunnskólanna verður svo unnið áfram með fræðslu um það hversu mikilvægt það er að  allir fái að segja sína skoðun og hafa áhrif á það samfélag sem við búum í. Markmiðið er að vekja börnin til umhugsunar um stöðu jafnréttismála þá og nú, hvetja þau til gagnrýninnar hugsunar og þjálfa í að hafa áhrif á líf sitt og umhverfi. Um leið fá þau einfalda en áþreifanlega fræðslu um það hvernig kosningakerfið virkar með því að taka sjálf þátt í kosningum.

Fjallað verður um baráttuna fyrir jafnrétti kynjanna og hversu miklum og góðum breytingum hún hefur valdið í samfélagi okkar. Börnin vinna í hópum og segja frá hvaða réttindi eru þeim mikilvægust í dag. Efnt verður til kosninga innan skólanna um hvaða orð/setning um réttindi er mikilvægust og á endanum berst ein ósk um mikilvæg réttindi frá hverjum grunnskóla í borginni.

Hljómsveitin Amabadama mun svo semja lag og texta út frá réttindaóskum barnanna í grunnskólum borgarinnar og tryggt verður að allir skólar sem tóku þátt eigi þar sína rödd. Lagið verður síðan tekið upp og sent til skólanna þar sem börnin og kennararnir æfa það til flutnings. Á setningarathöfn Barnamenningarhátíðar munu börnin öll, ásamt Sölku Sól Eyfeld og hljómsveitinni Amabadama, flytja réttindasöng fjórðu bekkinga í Reykjavík. Lagið verður einnig túlkað af táknmálstúlki á athöfninni.