Ágóði af jólamarkaði Frostaskjóls var varið til að styrkja starf Rauða krossins.
Óhætt er að segja að Frostaskjól hafi verið vinsælasti áfangastaðurinn í Vesturbænum í gær þegar þangað lögðu leið sína múgur og margmenni til að leggja sitt af mörkum til góðs málefnis og njóta þess að hitta mann og annan á jólamarkaði fjölskyldunnar.
Fullt var út úr dyrum í Frostaskjóli í ríflega tvær klukkustundir og varningurinn, sem börnin í frístundaheimilunum höfðu búið til fyrir þetta tilefni, rauk út eins og heitar lummur svo að eftir stóðu tóm borð og ótrúlega stoltir og ánægðir litlir sölumenn og föndrarar.
Þessar frábæru viðtökur skiluðu þeim árangri að metupphæð safnaðist með átakinu, en hvorki meira né minna en 260.000 króna ágóði varð af markaðinum sem rennur óskiptur til hjálparstarfs Rauða krossins. Þar verður peningunum varið til hjálparstarfs meðal barna.
Allir krakkarnir sem lögðu á sig óeigingjarna vinnu við að bæta líf annarra eiga hrós skilið fyrir sitt framlag.
Hér má sjá myndband sem fangar hinn sanna jólaanda jólamarkaðs fjölskyldunnar.
Allir krakkarnir sem lögðu á sig óeigingjarna vinnu við að bæta líf annarra eiga hrós skilið fyrir sitt framlag.
Hér má sjá myndband sem fangar hinn sanna jólaanda jólamarkaðs fjölskyldunnar.