Borgin tekur við rekstri Gistiskýlisins

Velferð

""

Borgin tók formlega við Gistiskýlinu á Lindargötu af Samhjálp um mánaðarmótin og verður reksturinn því alfarið í höndum borgarinnar. 

Með yfirtöku á rekstri Gistiskýlisins mun Reykjavíkurborg reka stærsta einstaka úrræðið  fyrir utangarðsfólk í borginni .  Stefna Reykjavíkurborgar í málefnum utangarðsmanna  mun ráða ferðinni í rekstri Gistiskýlisins.

Gistiskýlið við Lindargötu er opið alla daga ársins frá kl. 17.00 til kl. 10.00 næsta dag. Menn geta komið til gistingar hvenær sem er á opnunartíma, en ró skal vera í húsinu eftir miðnætti.

Markmiðið með starfseminni er að veita húsnæðislausum karlmönnum næturgistingu. Í gistiskýlinu er körlum veitt ráðgjöf og þeir fá stuðning til að breyta aðstæðum sínum. Þá fá þeir aðstoð félagsráðgjafa á þjónustumiðstöð, ef þeir leita ítrekað í Gístiskýlið. Aðstaða er fyrir 20 manns til gistingar, en auðvelt er að fjölga rúmum þegar svo ber undir.

Átta starfsmenn ganga vaktir í Gistiskýlinu auk forstöðumanns. Þrír nýir starfsmenn hafa verið ráðnir en áfram helst þekking og reynsla sem hefur áunnist hjá Samhjálp á löngu tímabili. Einn starfsmaður talar bæði pólsku og íslensku en það er mjög mikilvægt vegna þess að allt að 40% þeirra sem nýta þjónustuna í dag eru pólskumælandi. Flestir þeirra hafa litla sem enga enskukunnáttu og  því er þetta  mikilvæg nýjung í starfinu. Meðal annara nýjunga er að eldhús Reykjavíkurborgar við Lindargötu 59 mun sjá um matarinnkaup skýlisins en næturgestum er boðið uppá kvöldhressingu og morgunmat. Karlar sem nýta sér þjónustuna ættu ekki að verða varir við að borgin hafi tekið við rekstrinum. 

Þess ber að geta að Reykjavík tekur við góðu búi og þakkar Samhjálp fyrir áralangan rekstur skýlisins.