Borgin tekur við merki baráttunnar gegn kynferðisofbeldi

Mannlíf Menning og listir

""

Aktívistarnir í Konurtala // Þöggun afhentu Reykjavíkurborg fána baráttunnar gegn kynferðisofbeldi og nauðgunarmenningu á Menningarnótt og var það liður í dagskránni Allskonur í Ráðhúsinu. 

Sóley Tómasdóttir forseti borgarstjórnar tók við fánanum og ferilbók sem honum fylgir. Hún hét því að Reykjavíkurborg myndi bregðast við svokallaðri Bjútí-tips byltingu sem fór af stað í sumar og vakti athygli á umfangi kynferðisofbelda í landinu. Hún hét því að Reykjavíkurborg myndi færa til bókar þær aðgerðir sem gripið yrði til til að halda merki baráttunnar á lofti.

Herferðin konur tala hófst Í Bjútítipsbyltingunni á samfélagsmiðlum þar sem konur rufu þögnina og sögðu sögur af kynferðisofbeldi sem þær höfðu orðið fyrir. Það samfélagsmein sem nauðganir og kynferðisofbeldi er var gert sýnilegt með appelsínugulum og gulum prófílmyndum sem fólk var beðið um að nota á samfélagsmiðlum. Appelsínugula myndin táknaði að viðkomandi hefði verið beitt/ur kynferðisofbeldi og gula myndin að viðkomandi þekkti eitthvert fórnarlamb slíkra glæpa. 

Á næstu dögum og vikum mun fáni þessarar baráttu fara út um allt land; í ráðuneyti, til sveitarfélaga og stofnana sem hvatning til frekari umræðu og að gripið verði til aðgerða.  Meðal þess sem Reykjavíkurborg sem fyrsti viðkomustaður er beðin um að svara er:  



1) Hyggst borgin grípa til sérstakra aðgerða vegna frásagna kvenna af kynferðisofbeldi?

2) Munu stofnanir, grasrótarsamtök eða önnur sjálfboðaliðasamtök fá aukafjárveitingar til að aðstoða konur við að vinna úr afleiðingum kynferðisofbeldis?

3) Mun borgin beita sér fyrir því að rannsakað verði hvað veldur því að í okkar samfélagi og menningu verði svo mikill fjöldi kvenna fyrir nauðgun og annarri misnotkun eða áreiti af hálfu karla?

4) Mun borgin beita sér fyrir sérstökum forvörnum og fræðslu til að sporna gegn kynferðisofbeldi?