Steinunn Ása Þorvaldsdóttir starfar á mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Hún hóf störf í október og sinnir hún ýmsum málefnum fatlaðs fólks. Hún verður með vikulegar fréttir af því sem er að gerast í borginni undir heitinu „Borgin mín Reykjavík“.
Steinunn sinnir margvíslegum verkefnum í starfi sínu á mannréttindaskrifstofu. Hún á sæti í starfshópi sem undirbýr aðgerðatillögur til að sporna við heimilisofbeldi gegn fötluðu fólki. Þá aðstoðar hún við undirbúning viðburða eins og Fjölmenningarþings Reykjavíkurborgar sem haldið var í nóvember og vinnur nú við undirbúning fyrir Fjölmenningardaginn sem haldinn verður í maí.
Steinunn, sem er reynd dagskrárgerðarkona, hefur stýrt þáttunum Með okkar augum. Um er að ræða fyrstu sjónvarpsþætti sinnar tegundar á Íslandi þar sem fólk með þroskaskerðingu starfar beggja vegna myndavélarinnar. Steinunn og félagar hennar skoða málefni líðandi stundar með sínum augum og spyrja þeirra spurninga sem þeim eru hugleiknastar hverju sinni.
Steinunn ætlar nú að fara að flytja fréttir af því sem er að gerast í borginni á sinn einstaka hátt undir heitinu „Borgin mín Reykjavík“. Fyrsta fréttin sem birtist í gær fjallaði um Vetrarhátíð.
Steinunn ætlar að fjalla um það sem henni þykir skemmtilegt og áhugavert í borginni. „ Ég er bara mjög spennt því það er svo margt að gerast sem mig langar að segja frá og ég vona að fólk kunni að meta fréttirnar mínar“.