Borgarstjóri og varaborgarstjóri Oslóborgar fella Oslóartréð

Mannlíf Menning og listir

""
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og  Khamshajiny Gunaratnam varaborgarstjóri Oslóborgar felldu í sameiningu jólatré í skóglendi utan við Oslóborg í morgun.  Tréð, sem er gjöf Oslóborgar til Reykjavíkur, stóð í Norðurmörk við Maríudalsvatn og er um 12 metrar á hæð. 
Trén eru sérvalin og hafa notið sérstakrar aðhlynningar skógræktarfólks á 10 ára tímabili. Það þarf að vera þéttvaxið, keilulaga og hæfilega stórt til að það henti til flutnings. Þá þarf aðgengi að trénu að vera gott svo flutningabílar komist að því. Trjáfellingin gekk vel í dag og var tréð flutt niður að höfn þar sem því verður komið í gám Eimskips sem flytur það til landsins.
 
Í 64 ár hefur Oslóborg gefið Reykjavík grenitré að gjöf til marks um frændsemi og vinskap borganna tveggja. Lundúnaborg fær einnig jólatré að gjöf frá Osló.


Trénu verður svo komið fyrir á Austurvelli þar sem það verður skreytt með ljósaseríu.  Khamshajiny Gunatatnam, varaborgarstjóri Oslóar, verður svo viðstödd þegar kveikt verður á ljósunum á trénu við hátíðlega athöfn á 1. í aðventu þann 29. nóvember nk.