Borgarstjóri leitar að Reykvíkingi ársins 2015

Mannlíf

""

Borgarstjórinn í Reykjavík óskar nú eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking ársins. Til greina koma aðeins einstaklingar, sem hafa með háttsemi sinni eða atferli, verið til fyrirmyndar á einhvern hátt.

Slíkur borgari gæti t.d. verið einhver sem heldur borginni hreinni með því að tína upp rusl á víðavangi, hefur haft jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt eða samfélag með umhyggju og gert Reykjavíkurborg eða Reykvíkingum gott á undanförnum árum.



„Það eru fjölmargir einstaklingar sem vinna óeigingjarnt starf í þágu samborgara sinna á degi hverjum. Allir þekkja einhvern eldhuga í sínu hverfi sem með náungakærleik eða öðru framlagi til samfélagsins hefur gert Reykjavík betri. Ég hvet alla til að senda inn tilnefningu en þau sem hafa hlotið þennan titil síðastliðin fjögur ár eru sannkallað fyrirmyndarfólk“,  segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.



Reykvíkingur ársins hlýtur vegleg verðlaun frá Reykjavíkurborg,  m.a. boð frá borgarstjóra um að opna Elliðaárnar. Auk þess fær hann árskort í sundlaugar ÍTR, árskort í Fjölskyldu og húsdýragarðinn, Menningarkortið til eins árs og leikhúsmiða í Borgarleikhúsið.



Ábendingar um einstaklinga eru vel þegnar og ber að senda þær inn ásamt rökstuðningi á netfangið hugmynd@reykjavik.is eða bréflega til skrifstofu borgarstjóra merkt Reykvíkingur ársins fyrir 14. júní 2015.



Þriggja manna dómnefnd velur Reykvíking ársins úr innsendum tillögum.



Fyrri tilnefningar



Reykvíkingur ársins 2011 var Gunnlaugur Sigurðsson.



Reykvíkingur ársins 2012 var Theodóra Guðrún Rafnsdóttir.



Reykvíkingur ársins 2013 var Ólafur Ólafsson.



Reykvíkingar ársins 2014 voru bræðurnir Kristján og Gunnar Jónassynir, kaupmenn í versluninni Kjötborg, á horni Ásvallagötu og Blómvallagötu.