Borgarstjóri á leið til Kaupmannahafnar

Stjórnsýsla Mannréttindi

""

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, hefur sent Frank Jensen borgarstjóra Kaupmannahafnar samúðarkveðju vegna voðaverkanna sem framin voru þar á laugardag.  Dagur mun verða viðstaddur minningarathöfn vegna atburðanna í Kaupmannahöfn í kvöld.

Samúðarkveðjan frá Reykjavíkurborg hljómar svo.

Borgarstjóri Frank Jensen.


Kæri Frank. Fyrir hönd allra íbúa Reykjavíkur vil ég votta þér innilega samúð vegna voðaverkanna í Kaupmannahöfn 14. febrúar síðastliðinn. Við verðum að standa saman um opið og frjálst lýðræðisskipulag – og gegn því tilgangslausa ofbeldi sem birtist okkur á laugardaginn var. Hugur okkar er hjá íbúum okkar gömlu vinaborgar, fórnarlömbum árásarinnar, ættingjum þeirra og vinum.

Dagur B. Eggertsson Borgarstjóri Reykjavíkur.

Dagur flaug til Kaupmannahafnar nú síðdegis til að vera viðstaddur minningarathöfn um fórnarlömb árásanna en borgarstjórn Kaupmannahafnar bauð honum að vera viðstaddur athöfnina.  

Minningarathöfnin hefst klukkan átta í kvöld á Gunnar Nu Hansen torgi á Austurbrú. Allar opinberar stofnanir í Danmörku flagga í hálfa stöng í dag og búist er við miklum mannfjölda á athöfnina.  Forsætisráðherra Danmerkur og aðrir ráðherrar Danmerkur verða viðstaddir athöfnina.

Samúðarkveðja Dags B. Eggertssonar á dönsku.

Borgmester Frank Jensen

Kære Frank, På vegne af alle Reykjaviks indbyggere vil jeg udtrykke min dybeste medfølelse i forbindelse med attentaterne i København den 14. februar. Vi må stå sammen om et åbent og frit demokratisk system - og imod formålsløs vold således som vi så den sidste lørdag. Vore tanker er hos indbyggerne i vores gamle venskabsby København, hos attentaternes ofre, deres slægtninge og venner.

Dagur B. Eggertson, borgmester i Reykjavik