Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur tímabundið flutt skrifstofu sína í húsnæði Laugardalslaugar. Þessa vikuna mun hann heimsækja skóla, stofnanir, íþróttafélög og fyrirtæki í Laugardal og Háaleiti.
Þetta er í fjórða sinn sem borgarstjóri færir sig um set innan borgarinnar en hann var í Árbæjarhverfi í mars, í Breiðholti í apríl og í Hlíðum og Norðurmýri í september.
Í morgun hóf borgarstjóri vinnudaginn í Laugalækjarskóla þar sem hann sat fund með sviðs- og skrifstofustjórum borgarinnar. Eftir fundinn fékk borgarstjóri sér hafragraut með krökkunum í mötuneyti skólans.
Á morgun, þriðjudaginn 17. nóvember, mun borgarstjórn funda í Laugalækjarskóla og er sá fundur opinn almenningi eins og borgarstjórnarfundir almennt. Fundurinn hefst klukkan 14.
Borgarráð mun halda vikulegan fund sinn í húsnæði Laugardalslaugar á fimmtudaginn.