Borgarstjóri í Árbænum þessa viku

Stjórnsýsla Mannlíf

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur flutt skrifstofu sína tímabundið í Árbæinn. Skrifstofan verður í Árseli í hjarta hverfisins út þessa viku. 

Borgarstjóri mun funda með starfsfólki stofnana Reykjavíkurborgar í Árbæ og heimsækja fyrirtæki í hverfinu. „Ég mun síðan kíkja í Árbæjarlaug og eiga fund með mínu gamla íþróttafélagi Fylki,“ segir borgarstjóri.

Á morgun þriðjudag hefur verið boðað til opins hverfafundar með íbúum í Árbæ. Fundurinn verður í Árbæjarskóla þriðjudaginn 24. mars kl. 20.00.

Til umræðu á fundinum verður allt sem tengist hverfinu, framkvæmdir, þjónustukannanir og hverfisskipulag sem er ný skipulagsáætlun fyrir öll hverfi Reykjavíkur. Hverfisskipulaginu er ætlað að auðvelda skipulag, áætlanagerð og hvetja fólk til að hafa aukin áhrif á hverfið sitt.

Er þetta fyrsti hverfafundurinn sem borgarstjóri heldur en hann verður með opna fundi í öllum hverfum borgarinnar á næstu misserum.

Borgarráð mun síðan funda í Árbæ á fimmtudag í tilefni af heimsókn borgarstjóra í hverfið.