Borgarstjóri heimsækir Árbæjarskóla

Skóli og frístund Mannlíf

""

Dagur B. Eggertsson, ásamt borgarfulltrúum Vinstri grænna, Besta flokksins, Pírata og Samfylkingar heimóttu Árbæjarskóla í dag. Þorsteinn Sæberg skólastjóri tók á móti hópnum og fór um skólann og kynnti þeim starfsemina.

Það var nóg um að vera í Árbæjarskóla þegar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og borgarfulltrúar komu til þess að skoða skólann. Dagur gekk í Árbæjarskóla og þekkir því skólabygginguna vel og rifjaði upp ýmsar sögur frá skólagöngu sinni.

600 börn eru í Árbæjarskóla frá 1. upp í 10. bekk. Þorsteinn Sæberg skólastjóri fór með hópinn í skoðunarferð og var meðal annars farið í tíma í myndlist, matreiðslu og enskukennslu. Þátttökubekkur Klettaskóla er innan Árbæjarskóla og kom hópurinn þar við og heilsaði upp á nemendur og kennara. 

Í Heimilisfræði voru krakkarnir í óða önn að búa til kanelsnúða og var ilmurinn í eldhúsinu eftir því. Þegar hópurinn kom inn á sal skólans þá sat stór hópur krakka og voru þau að syngja lagið Once again með Friðriki Dór. Krakkarnir sungu af mikilli innlifun eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

Dagur hefur flutt skrifstofu sína tímabundið í Árbæinn. Skrifstofan verður í Árseli í hjarta hverfisins út þessa viku. Hann mun funda með starfsfólki stofnana Reykjavíkurborgar í Árbæ og heimsækja fyrirtæki í hverfinu.