Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun flytja skrifstofu sína á Kjarvalsstaði í næstu viku. Þetta er í þriðja sinn sem borgarstjóri færir sig um set innan borgarinnar en hann var í Árbæjarhverfi í mars og í Breiðholti í apríl á þessu ári.
Borgarstjóri verður á ferð um Hlíðar, Holt og Norðurmýri á meðan á dvöl hans stendur og mun hann heimsækja stofnanir, skóla, íþróttafélög og fyrirtæki auk þess mun hann funda með starfsfólki stofnana Reykjavíkurborgar.
Boðað verður til opins hverfafundar með íbúum og verður hann haldinn á Kjarvalsstöðum þriðjudaginn 22. september nk. klukkan 20.
Til umræðu á fundinum verður allt sem tengist hverfinu, framkvæmdir, þjónusta og hverfisskipulag sem er ný skipulagsáætlun fyrir öll hverfi Reykjavíkur. Hverfisskipulaginu er ætlað að auðvelda skipulag, áætlanagerð og hvetja fólk til að hafa aukin áhrif á hverfið sitt.