Óháð stærð og staðsetningu borga þá telur Ellý að helstu verkefni þeirra séu af svipuðum toga. “Borgir vilja tryggja íbúum sínum heilnæmt umhverfi og almenn lífsgæði. Verkefni eins og góðir göngu- og hjólastígar, göngugötur, flokkun úrgangs, góðar almenningssamgöngur og útivistarsvæði eru m.a. til þess fallin að draga úr mengun og auka lífsgæði. Það má því segja að borgir hafi um þó nokkurn tíma verið að innleiða verkefni sem draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og gera má ráð fyrir að þær haldi ótrauðar áfram á þeirri braut. Borgir eru nú þegar farnar að undirbúa sig fyrir breytta framtíð og líklegast er talið að þær muni helst búa yfir þeim úrræðum sem loftlagsbreytingar kalla á til framtíðar. Samstarf borga á alþjóðavísu mun skipta miklu máli í þessu samhengi.”
Ellý lýsti líka yfir ánægju sinni með aukna aðkomu “Non State Actors” að COP21 og Parísarsamningnum þar sem fyrirtæki, fjárfestar og frjáls félagasamtök, hafa gefið áheit um samdrátt gróðurhúsalofttegunda og styðja við innleiðingu nýs samnings. Þessir aðilar eru að svara þessu kalli af krafti. Reykjavíkurborg og Festa lögðu einmitt fram yfirlýsingu 104 íslenskra fyrirtækja um aðgerðir í loftslagsmálum á ráðstefnunni í París.