Borgarfulltrúar sigla með kútter Westward Ho

Umhverfi Mannlíf

""

Kútterinn Westward Ho frá Þórshöfn í Færeyjum kom til Reykjavíkurhafnar til að taka þátt í Hátíð hafsins sem fram fór um helgina.  Koma kúttersins er samkvæmt samkomulagi sem gert var milli Faxaflóahafna og Þórshafnar í Færeyjum með það að markmiði að auka tengsl Íslendinga og Færeyinga og til þess að minna á merkilega sögu og samstarf á sviði siglinga og fiskveiða.

Kútter Westward Ho var byggður í Englandi árið 1884, en gerður út frá Færeyjum allt frá árinu 1895 fram á sjöunda áratug síðustu aldar. Kútterinn hefur verið gerður upp og nýtist nú til siglinga með ungt fólk og ferðamenn, en er einnig siglt á viðburði í öðrum löndum. Kútterinn lagði upp frá Þórshöfn 31. maí síðastliðinn og í áhöfn voru átta Færeyingar og átta Íslendingar, þeirra á meðal var Sigurður Björn Blöndal, formaður borgarráðs. Komið var til hafnar 6. maí til að taka þátt í Hátíð hafsins og vakti báturinn mikla athygli hátíðargesta.

Sigurður Björn Blöndal segir það hafa verið mikla upplifun að sigla á þessu 130 ára gamla skipi milli Færeyja og Íslands. „Við fengum ýmsar gerðir af veðri og það var sérstaklega gaman að upplifa hvað skipið var stöðugt í miklum norðanstormi sem við fengum á okkur. Það gekk ýmislegt á og meðal annars rifnaði aðalseglið í mesta storminum. En þetta var ánægjuleg sigling, enda gott sjóskip og félagsskapurinn góður. Samskipti Íslendinga og Færeyinga eru náin og samstarf eins og þetta styrkir böndin enn frekar. Það er einstakt að vera þátttakandi í svona viðburði og samskiptin um borð bera þess vitni að rætur okkar liggja samsíða frændum okkar í Færeyjum“.

Í morgun héldu borgarfulltrúarnir þær Líf Magneudóttir og Elsa Yeoman með kútter Westward Ho aftur til Færeyja  og tekur siglingin um sex daga. Góða sjóferð!