Bókamessa og lifandi bókmenntadagskrá í Ráðhúsinu alla helgina

Menning og listir

Séð yfir Bókamessu í Tjarnarsal Ráðhússins
Helgina 21.-22 nóvember 2015 verður hin árlega Bókamessa í Bókmenntaborg haldin í fimmta sinn. Messan verður sem fyrr í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem útgefendur sýna nýjar bækur og boðið verður upp á fjölbreytta bókmenntadagskrá fyrir fólk á öllum aldri.
Líf og fjör verður í Ráðhúsinu alla helgina. Upplestrar, sögustundir, spjall um bækur, leikir og getraunir, ljúffengt smakk og óvæntar uppákomur. Þarna gefst fólki einstakt tækifæri til að kynna sér bókaútgáfu ársins á einu bretti, ræða við útgefendur og höfunda, fá hugmyndir að bókum í jólapakkana og skemmtilegu lesefni fyrir sig sjálft.

Húsið er opið milli kl. 12:00 – 17:00 báða dagana. Ekkert kostar inn og eru allir hjartanlega velkomnir.


Bókasýningin verður í Tjarnarsalnum og þar verður einnig pop-up kaffihús Kaffitárs. Bókmenntadagskráin verður á þremur stöðum í húsinu: í borgarstjórnarsalnum á 2. hæð (gengið upp stiga austan megin), í salnum þar sem áður var kaffihús Ráðhússins á 1. hæð austan megin og í matsal Ráðhússins á 1. hæð (við stigagang austan megin). Einnig verður dagskrá og sýningarborð á gönguásnum á 1. hæð.