Reykjavík mun fagna Menningarnótt í ilmandi blómskrúða en óvenjumörg falleg blómker og beð eru nú í miðborginni. Þema í blómskreytingum þetta sumarið var bleikur litur og er hann ráðandi í öllum beðum.
Á brúnni yfir Skothúsveginn voru í sumar settar litskrúðugar blómakörfur og á mótum Hringbrautar og Njarðargötu og í Bakarabrekkunni voru útbúin litrík blómabeð í tilefni af Gleðigöngunni með regnbogalituðum blómum. Undanfarin ár hefur blómakerjum einnig verið fjölgað í öllum borgarhverfum og má sjá þau víða á götuhornum. Í þeim eru jafnan blanda af fjölærum plöntum og blómstrandi plöntum.
Vala Valdimarsdóttir, garðyrkjufræðingur hjá skrúðgörðum á Klambratúni, segir að gróðursett hafi verið á Austurvelli með það í huga að þar væru blóm í fullum skrúða í allt sumar. Þannig hafi fjólur blómstrað snemmsumars, en síðan hafi nellikkur tekið við og séu nú í blóma. Auk þess hafi verið plantað út skrautnál sem gefi góðan ilm, silfurkambi og hvítum margarítum.
Vala segir að á Klambratúni hafi einnig verið gróðursett blóm í lopapeysumynstri í tilefni af 100 ára kosningaafmæli kvenna og eignalausra karla. Sjálf prjónaði hún sama lopamynstrið utan um bak á nokkrum bekkjum á túninu. Þetta hafi vakið óskipta athygli gangandi vegfarenda og sett skemmtilegan svip á þetta fjölsótta útivistarsvæði.
Um það bil 85. 000 plöntur hafa verið gróðursettar í borgarlandinu í sumar. Hjá skrúðgörðum á Klambratúni starfa 11 manns sem sinna gróðursetnignu í flestum hverfunum, vökvun og umhirðu blómabeða og kerja.
Hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar er haft að leiðarljósi í verklagi við garðyrkju og umhirðu gróðurs í borginni. Þannig eru tré og runnar sem falla til við klippingu og grisjun kurluð og notuð sem yfirborðslag í beðin.
Sjá einnig viðtal við Kareni Hauksdóttur flokksstjóra sem stjórnaði plöntun í blómabeðin í Miðborginni.