Blómaverslunin Upplifun og Verslun 66°N hljóta hvatningarverðlaun
Mannlíf Menning og listir
Njarðarskjöldurinn og Freyjusómi 2014 voru afhentir við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær. Njarðarskjöldurinn og Freyjusómi eru viðurkenningar og hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar sem veitt eru árlega til verslana eða verslunareigenda fyrir góða þjónustu og ferskan andblæ í ferðaþjónustu. Verslanirnar sem hlutu verðlaun eru blómabúðin Upplifun í Hörpu og 66°N í Bankastræti.
Njarðarskjöldurinn er hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar, Miðborgarinnar okkar, Félags atvinnurekenda, Samtaka verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtaka Íslands, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide – Ísland.
Njarðarskjöldurinn er nú afhentur í nítjánda sinn en markmið verðlaunanna er að hvetja til bættrar og aukinnar verslunarþjónustu við ferðamenn í Reykjavík.
Njörður, sem skjöldurinn er kenndur við, var upphaflega frjósemisguð en síðar guð sæfarenda og sagður fésæll mjög. Sæfarendur þess tíma stunduðu gjarnan kaupskap og því er við hæfi að kenna árleg hvatningarverðlaun til ferðamannaverslunar við guð siglinga og viðskipta.
Við tilnefningu ferðamannaverslunar ársins er leitast við að verðlauna þá verslun sem hefur náð hvað bestum söluárangri til erlendra ferðamanna milli ára. Horft er til markaðs- og kynningarmála, svo sem auglýsinga, vefs og útlits almennt. Aðrir þættir eru einnig skoðaðir sérstaklega svo sem þjónustulund, opnunartími, merkingar um endurgreiðslu virðisauka, lýsing, tungumálakunnátta starfsfólks og þekking á söluvörunum.
Verslunin 66°N hlaut Njarðarskjöldinn en að mati dómnefndar er þjónustustigið í versluninni með því besta sem gerist. Boðið er upp á persónulega þjónustu og starfsmenn leiðbeina og selja viðskiptavinum hágæða vöru. Vöruúrval og framsetning er með miklum sóma.
Verslunin er björt og falleg og ber vitni um hágæða íslenska framleiðslu og góða þjónustu.
Freyjusómi er hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar, Miðborgarinnar okkar, Félags atvinnurekenda, Samtaka verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtaka Íslands, Global Blue á Íslandi og Tax Free Worldwide – Ísland.
Freyjusómi er viðurkenning sem nú er afhent í fjórða sinn samhliða afhendingu Njarðarskjaldarins. Viðurkenningin er veitt til þeirrar verslunar sem þykir koma með hvað ferskastan andblæ í verslunarrekstur á ferðamannamarkaði í borginni.
Nafn viðurkenningarinnar er sótt í norræna goðafræði eins og nafn Njarðarskjaldarins en Freyja var gyðja frjósemi og þykir því vel við hæfi að tengja Freyju við viðurkenninguna þar sem frjó hugsun og fersk nálgun er höfð að leiðarljósi í verslunarþjónustu gagnvart erlendum ferðamönnum.
Blómaverslunin Upplifun í Hörpu hlaut Freyjusómann og að mati dómnefndar tekst eigendum verslunarinnar svo sannarlega að standa við loforð um: ,,að skapa upplifun fyrir öll skynfærin. Fegurðina í blómum og gjafavöru ásamt framsetningu þeirra, ilminn af ferskum blómum, fallega tónlist til að skapa fegurð fyrir eyrað og svo bækur fyrir andann“. Verslunin er í alla staði mikið augnayndi og sómir sér vel sem ferðamannaverslun.