Bláfáninn blaktir við Ylströndina

Umhverfi Mannlíf

""

Ylströndin í Nauthólsvík fagnar því að draga Bláfánann að húni í tíunda sinn. Bláfáninn er árleg umhverfisviðurkenning fyrir hafnar- eða strandsvæði, en ákveðin skilyrði eru sett til að fá að flagga fánanum. Það er Landvernd sem hefur umsjón með því að afhenda fánann þeim sem uppfylla sett skilyrði.

Fáninn var dreginn að húni með viðhöfn í dag, fimmtudaginn 2. júlí.  Bláfáninn er ein útbreiddasta umhverfisviðurkenning, sinnar tegundar, í heiminum en yfir 4000 baðstrendur og smábátahafnir flagga fánanum í 49 löndum. Níu staðir á Íslandi flagga fánanum, strendur og smábátahafnir. Strendurnar eru þrjár, Ylströndin, Bláa lónið og Langisandur á Akranesi. 

Með Bláfánavottun er Ylströndin skuldbundin til að vinna markvisst að því;



• að staðurinn hafi á sér yfirbragð snyrtimennsku og hreinleika,

• að staðurinn hafi tiltækan björgunarbúnað og slökkvitæki sem og búnað til fyrstu hjálpar,

• að boðið sé upp á þrifaleg salerni og þvottaaðstöðu,

• að til staðar sé móttaka fyrir flokkaðan úrgang,

• að veittar séu upplýsingar um hvernig beri að vernda viðkvæm svæði sem kunna að vera í nágrenninu,

• að Bláfánaströndin veiti upplýsingar um vatnsgæði,

• ap nota umhverfisvænar vörur í daglegu starfi og til viðhalds.

Salome Hallfreðsdóttir fulltrúi frá Landvernd, sagði fánann tákn um gæði í margvíslegum skilningi og hver sá sem fær að flagga honum getur verið stoltur af vinnu sinni að umhverfismálum. Hún bætti því við að það væri sæmandi fiskveiðiþjóð og ferðamannalandi að gera kröfur um góða umhverfisstjórnun í höfnum landsins og Bláfáninn væri öflugt tæki til að stuðla að því.



Gestir Ylstrandarinnar taka einnig þátt í því að vernda Bláfánasvæði og umhverfi þess með því að sýna aðgát í umgengni við dýr og plöntur, ganga snyrtilega um, flokka úrgang og hvetja aðra til að vernda svæðið og ganga snyrtilega um. 

Ekki er nóg að uppfylla skilyrði fyrir Bláfána einu sinni því árlega er vandlega farið yfir það hvort ströndin stenst þær kröfur sem til þarf. Það er því metnaður Ylstrandarinnar að þar takist að blakta fánanum árlega. Nú er um að gera að skella sér á ströndina, sýna gott fordæmi i umgengni og fagna því að sjá Bláfánann, sönnun þess að Ylströndin hugar að umhverfinu.

Meira um Bláfánann á vef Landverndar.