Á fundi borgarstjórnar 16. júní urðu formannaskipti í velferðarráði. Ilmur Kristjánsdóttir var þá kosin formaður velferðarráðs . Ilmur tekur við formennsku af Björk Vilhelmsdóttur sem hefur setið í velferðarráði samfellt í 13 ár og þar af níu ár sem formaður. Við sæti Bjarkar í ráðinu tók Heiða Björg Hilmisdóttir.
Björk hættir í velferðarráði til að minnka við sig vinnu en segist einstaklega þakklát fyrir að hafa starfað á þessum vettvangi í svona langan tíma. Þannig hefur hún fengið að taka þátt í miklum breytingum í velferðarþjónustunni en þjónustan þarf að vera sveigjanleg vegna breytinga í samfélaginu og svo eru þarfir hvers og eins sem þurfa stuðning í sínu lífi síbreytilegar.
Á þeim árum sem Björk hefur setið í ráðinu hefur áherslan aukist á sjálfstætt líf og þar með á stuðning og þjónustu inni á heimilum fólks. Félagsleg heimaþjónusta um kvöld-, nætur- og helgar var sett á og síðar samþætt heimahjúkrun. Aksturþjónusta aldraðra var sett á laggirnar árið 2005 til að styðja aldraðra til sjálfstæðrar búsetu og mikil aukning hefur orðið í persónulegri stuðningsþjónustu við fólk sem býr við alvarlegar skerðingar í lífi sínu.
Reykjavíkurborg hóf greiðslu sérstakra húsaleigubóta, fyrst allra sveitarfélaga árið 2005 en Reykjavík hefur verið leiðandi sveitarfélag í velferðarþjónustu um langt skeið, ekki síst í stuðningi við tekjulágar fjölskyldur og utangarðsfólk.
Við yfirfærslu á málefnum fatlaðs fólks árið 2011 af ríkinu þurfti velferðarráð hins vegar að kynna sér hvernig aðrir fóru að og þá var gott samstarf við Akureyri sem hafði þróað þá þjónustu í nærsamfélagi frá 1997.
Enn er margt ógert í velferðarmálum, viðfangsefnin eru margvísleg og stöðugt þarf að rýna og þróa mál í samræmi við breytingar í samfélaginu. Í ræðu Bjarkar í borgarstjórn við þessi tímamót samgladdist hún þeim sem tóku við keflinu enda einstaklega gott og gefandi að vinna við fjölbreytileika mannlífsins í borginni.