Biophilia tekur á sig nýja mynd í norrænu samstarfi

Skóli og frístund

""

Biophilia,  kennsluverkefni sem varð til í samstarfi Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarkonu, Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands á árinu 2011, tekur á sig nýjar myndir. Skólum í Reykjavík býðst nú að taka þátt í norrænu samstarfi um þetta metnaðarfulla menntaverkefni sem var eitt af formennskuverkefnum Íslendinga í Norrænu ráðherranefndinni 2014.  

Biophilia er nú líka samnorrænt tilraunaverkefni, fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni sem gefur nýja möguleika á að þróa þverfaglegu tónvísindasmiðjurnar og námsefnið sem þeim fylgja. Reykjavík fer með forystu í þessu verkefni, en þátttökuborgir eru; Sisimiut á Grænlandi, Stavanger í Noregi, Þórshöfn í Færeyjum, Álaborg í Danmörku, Maríuhöfn á Álandseyjum, Sundsvall í Svíþjóð og Grankulla/Helsinki í Finnlandi.

Skólum á þessum stöðum býðst með fjárstyrk Norrænu ráðherranefndarinnar að taka ný skref í samþættingu ólíkra námsgreina með aðstoð sérfræðinga á ýmsum sviðum. Þá fá þeir tækifæri til að byggja upp tónlistar- og vísindakennslu og taka þátt í samstarfi norrænna skóla.

Þrjú ár eru liðin síðan Björk kynnti verkefnið fyrir reykvískum grunnskólum og var inntak þess ný tækni og áherslur í tónlistarsköpun og náttúruvísindum. Frá þeim tíma hafa kennarar í Reykjavík tekið virkan þátt í að móta verkefnið sem hefur vaxið og dafnað undir þeirra handleiðslu. Almenn ánægja hefur verið meðal kennara og nemenda með þá þverfaglegu nálgun og lifandi kennsluhætti sem verkefnið býður upp á.

Með norrænum fjárstuðningi verður gefið út ítarlegt námsefni sem styður enn frekar við kennslutilhögun í tónvísindasmiðjum. Þar er haldið til haga því besta úr kennslureynslunni í Reykjavík. Helsta nýjungin í kennsluefni er úrvinnsla á tengingum við félagslega og sálræna þætti listsköpunar, en reynslan sýnir að með því að nálgast viðfangsefni með þverfaglegum og fjölbreytilegum aðferðum eflist sjálftraust nemenda, hvort heldur við tónlistarsköpun eða í náttúrufræðinámi.

Biophilia byggist á því að nota sköpun sem menntunar- og rannsóknaraðferð þar sem náttúruvísindi, tónlist og tækni eru tengd saman í nýstárlegu sköpunarferli. Verkefnið grundvallast á víðtæku samstarfi fræðimanna, vísindamanna, listamanna, kennara og nemenda á öllum skólastigum.

Markmið Biophilia

• að auka áhuga ungs fólks á tónlist, náttúrufræðum og tækni

• að efla gagnrýna hugsun nemenda með því að dýpka og efla tök þeirra á hugtökum sem tengjast vísindum, tónlist og samfélaginu

• að ýta undir nýsköpunarhugsun nemenda

• að styrkja sjálfsmynd nemenda

• að ýta undir nýsköpun í skólastarfi, þróun nýrra kennsluaðferða og þverfaglegt samstarf

• að stuðla að starfsþróun kennara í skapandi kennsluháttum

• að mæta kröfum aðalnámskrár um fjölbreytta kennsluhætti

• að auka tengsl milli skóla í borginni og við norrænt skólastarf

• að þróa aðferðir til að meta vinnu nemenda og árangur verkefnisins

Ítarlegar upplýsingar um Biophilia menntaverkefnið á biophiliaeducational.org