Þjónusta við grenndargáma í Reykjavík er nú í útboði. Stefnt er að því að nýtt og betra kerfi taki við í febrúar 2016. Á meðan beðið er niðurstöðu útboðs verður skipt um gáma á grenndarstöðvunum fyrir pappír og plast. Einhver röskun á þjónustunni kann að verða í þessu millibilsástandi og eru notendur beðnir um að sýna því skilning. Allar ábendingar frá íbúum eru vel þegnar en þær er hægt að senda á sorphirda@reykjavik.is eða með því að hringja í 411 1111.
Með nýju grenndargámakerfi sem verður komið á í febrúar 2016 verður hægt að skila gleri á fleiri stöðvum en áður. Á stærstu grenndarstöðvunum verður því hægt að flokka pappír, plastumbúðir, glerumbúðir, föt og klæði, dósir og flöskur. Gámar verða hentugri en áður og hægt verður að hífa þá sem eykur hagræði við tæmingu.
Fatagámar verða áfram á vegum Rauða kross Íslands og dósasöfnun í höndum Skátanna, en gámar frá þessum aðilum eru ekki á öllum grenndarstöðvum.
Söfnun á glerumbúðum á grenndarstöðvum er liður í að auka endurvinnslu á höfuðborgarsvæðinu en SORPA stefnir að því að ná yfir 95% endurnýtingarhlutfalli úrgangs frá heimilum á svæðinu á næstu árum.