Barnamenningarhátíð í Árbæ
Rétt í þessu var að ljúka opnunarhátíð Barnamenningarhátíðar í Árbænum. Opnuð var myndlistarsýning nemenda 8. - 10. bekkjar Árbæjarskóla sem sett var upp í Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts.
Rétt í þessu var að ljúka opnunarhátíð Barnamenningarhátíðar í Árbænum. Opnuð var myndlistarsýning nemenda 8. - 10. bekkjar Árbæjarskóla sem sett var upp í Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts. Myndlistarfólkið var mætt ásamt kennurum sínum, þeim Elísu Ósk myndmenntakennara, Dóru Guðrúnu textílkennara og Þorsteini Sæberg skólastjóra. Sólveig Reynisdóttir framkvæmdastjóri og Þorkell Heiðarsson, formaður hverfisráðs Árbæjar tóku á móti þeim í þjónustumiðstöðinni og formaður hverfisráðs opnaði sýninguna.
Myndirnar eru teknar við það tækifæri.