Barnamenningarhátíð - enn hægt að skrá þátttöku

Skóli og frístund Mannlíf

""

Barnamenningarhátíð verður haldin 21. - 26. apríl næstkomandi. Enn er hægt að skrá verkefni til þátttöku á hátíðinni en skráningarfrestur rennur út 9. mars.

 

Markmið Barnamenningarhátíðar er að efla menningarstarf barna og ungmenna í borginni. Hátíðin er vettvangur fyrir menningu barna, með börnum og fyrir börn. Hún fer um öll hverfi borgarinnar og rúmar allar listgreinar og annað sem að börnum og menningu þeirra snýr. Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn og enn er hægt að skrá  verkefni til þátttöku á hátíðinni en frestur rennur út þann 9. mars næstkomandi.

Frestur til að sækja um kostnaðarþátttöku vegna viðburða á hátíðinni rann út þann 12. febrúar sl.  Tæplega 90 umsóknir bárust Höfuðborgarstofu um kostnaðarþátttöku á Barnamenningarhátíð 2015 að upphæð 12.912.000 krónur. 3.700.000 kr. voru til úthlutunar og var 48 verkefnum úthlutað fjármagn.

Af verkefnum má nefna:

Náttúru(h)ljóð og myndir – samstarfsverkefni Grasagarðsins, Listaháskóla Íslands og Laugarnesskóla

Tíra, ævintýraheimurinn okkar – samstarfsverkefni Kjarvalsstaða og leikskólanna Lindarborg, Njálsborg og Barónsborg.

Reykjavík got Talent – samstarfsverkefni félagsmiðstöðva í borginni

Lögin hans Tryggva – samstarfsverkefni Tónskóla Sigursveins, Hamrahlíðarkórsins og leikskóla í Reykjavík

Skólabrú – samstarfsverkefni Danslistaskóla JSB og grunnskóla

Tréskúlptúrar – samstarfsverkefni myndhöggvarafélagsins og grunnskóla

Dansverk – samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins og Klettaskóla

Myndlistasýning barnanna – samstarfsverkefni Ekkiséns og Listamannakofans

Heyrðu villuhrafninn mig – samstarfsverkefni Dúó stemmu og Hannesarholts

Allir í leik út á róló – Félag um leikvallarskýli í samstarfi við Borgarsögusafnið

Sviðslistahátíð Assitej fyrir börn á öllum aldri

Upptakturinn – tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna