Barnalist upp um alla veggi í Geislabaugi

Skóli og frístund

""

Opið hús var í leikskólanum Geislabaugi um helgina en þar var sett upp sýning á listaverkum sem börnin gerðu í vetur. 

Margir lögðu leið sína í leikskólann, foreldrar og aðrir aðstandendur barnanna. Einnig komu foreldrar með börn sem byrja í leikskólanum eftir sumarleyfi og skoðuðu uppskeru vetrarins.  

Mikill metnaður er lagður í árlega sýningu leikskólabarnanna í Geislabaugi enda margt fallegt að sýna. Leikskólinn starfar í anda Reggio Emilia hugmyndafræðinnar og er sköpun í öndvegi.