Bannað að aka utanvega á skíðasvæðum

Umhverfi Íþróttir og útivist

""
Allur akstur utan vega á skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins, til að mynda í Bláfjöllum er stranglega bannaður.
Að undanförnu hefur nokkuð borið á því að ekið sé á jeppum og snjósleðum utan vega á skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Af gefnu tilefni vill  stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins því ítreka að allur akstur vélsleða og jeppa utan vega á skíðasvæðunum er stranglega bannaður.
Öll brot á gildandi reglum á svæðinu verða kærð til lögreglu