Bandaríski sendiherrann á Íslandi, Robert C. Barber og Hafþór Yngvason safnstjóri Listasafns Reykjavíkur skrifuðu í dag undir styrktarsamning vegna nýs samstarfverkefnis í tengslum við listaverk bandaríska listamannsins Richard Serra. Meðal annars á að bjóða upp á listasmiðjurnar Nám í náttúru og list í Viðey í sumar fyrir börn á aldrinum 8 - 13 ára.
Listasmiðjurnar Nám í náttúru og list í Viðey verða haldnar í tengslum við sýninguna Áfanga á verkum bandaríska listamannsins Richard Serra í Hafnarhúsinu. Listsmiðjurnar standa í viku í senn þar sem áhersla verður lögð á samband myndlistar og náttúru og tenginguna við Áfanga, verk Richard Serra í Viðey. Á þessu ári er aldarfjórðungur síðan verkið var sett upp í Viðey og af því tilefni efnir Listasafn Reykjavíkur til sýningar með sama heiti í Hafnarhúsinu sem opnar þann 21. maí.
„Listsmiðjurnar í Viðey tengja myndlist, náttúru eyjunnar og fræðslu saman á nýstárlegan hátt. Hér fá börn og unglingar tækifæri til að kynnast listaverki eins merkasta listamanns samtímans um leið og þau læra að meta og skilja náttúruöflin sem mótuðu þeirra næsta umhverfi“, sagði Hafþór Yngvason safnstjóri Listasafns Reykjavíkur. „Við þökkum Bandaríska sendiráðinu fyrir áhuga þess á list, náttúru og fræðslu og fyrir þann rausnarlega styrk sem það veitir til að tengja þetta saman á þennan hátt.“
„Það gleður Sendiráð Bandaríkjanna að styrkja þetta verkefni sem sameinar kennslu, náttúru og list á áhugaverðan hátt. List er án landamæra og í gegnum listina getum við deilt reynslu þekkingu og gildum", sagði Robert C. Barber, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. „Richard Serra er vel þekktur bandarískur listamaður og þetta er frábært tækifæri til að kenna næstu kynslóð að meta íslenska náttúru í gegnum list hans."
Listasmiðjur, skráning og nánari upplýsingar
Listasafn Reykjavíkur og Bandaríska sendiráðið bjóða upp listsmiðjurnar Nám í náttúru og list í Viðey í sumar fyrir börn á aldrinum 8 - 13 ára í tengslum við sýninguna Áfanga á verkum bandaríska listamannsins Richard Serra í Hafnarhúsinu. Listsmiðjurnar standa í viku í senn þar sem áhersla verður lögð á samband myndlistar við umhverfi sitt hvort sem það er náttúra eða manngert. Þátttakendur fá tækifæri til að njóta íslenskrar náttúru, teikna, mála, móta, skrá niður hugleiðingar sínar og tengja við aðra myndlistarmenn sem iðka ámóta aðferðir og vinnulag. Þeir heimsækja jafnframt sýningu Richard Serra Áfanga í Hafnarhúsinu og skoða samnefnt verk hans úti í Viðey. Listamennirnir og fjallaleiðsögumennirnir Margrét H. Blöndal og Ósk Vilhjálmsdóttir sjá um smiðjurnar. Listsmiðjurnar verða alls fjórar og fara fram frá kl. 9 - 17 dagana 8. - 12 júní, 22. - 26. júní, 20. - 24. júlí og 10. - 14. ágúst. Skráning hefst í byrjun maí. Nánari upplýsingar á fristund.is og á listasafnreykjavikur.is.