Teymi sérfræðinga fær það hlutverk að auka stuðning við börn og ungmenni með fjölþættan vanda, þar með talið vímuefnavanda. Þetta var ákveðið á fundi skóla- og frístundaráðs 4. febrúar.
Skóla- og frístundaráð ákvað á fundi sínum 4. febrúar að setja á fót teymi sérfræðinga sem hafi það hlutverk að auka stuðning við börn og ungmenni á grunnskólaaldri með fjölþættan vanda, þar með talið vímuefnavanda. Leita verður eftir samstarfi við velferðarsvið og Barnavernd Reykjavíkur.
Hlutverk teymisins verður tvíþætt;
1. að vinna með foreldrum og barni/ungmenni, skólum og frístundamiðstöðvum að lausn bráðavanda sem upp kemur hverju sinni þannig að barnið eigi tryggan aðgang að námi og úrræðum við hæfi.
2. að vinna að lausn til lengri tíma með því að virkja betur viðeigandi úrræði og koma með tillögur að nýjum úrræðum til að bæta þjónustu við börn og ungmenni með fjölþættan vanda.
Teymið skal skipað sérfræðingum frá skóla- og frístundasviði, Brúarskóla, þjónustumiðstöðva og Barnavernd Reykjavíkur. Ráðgjafasvið Brúarskóla mun bera ábyrgð á og leiða teymisvinnuna.
Teymið skal hafa samráð við foreldra og viðkomandi barn eða ungmenni, skólastjóra og stjórnanda frístundamiðstöðvar við val og mótun úrræða.
Í bókun meirihlutans í skóla- og frístundaráði segir m.a.
- Í skólum borgarinnar koma öðru hvoru upp alvarleg mál sem tengjast fjölþættum vanda nemenda, þar með talið alvarlegum hegðunarvanda, geðrænum vanda og vímuefnavanda. Í einstaka málum er vandinn svo alvarlegur að úrvinnsla þolir ekki bið og grípa þarf tafarlaust inn í með markvissum hætti.
Teymið skal skila tillögum að nýjum úrræðum fyrir 1. maí 2015.
Sjá fundargerð 73. fundar skóla- og frístundaráðs frá 4. febrúar 2015.