Með tilkomu grænu tunnunnar undir plast síðastliðið haust verður breyting á hirðutíðni grárra, blárra og grænna tunna eftir áramót.
Flokkun er meiri og því minnkar úrgangur og hægt er að hirða sjaldnar. Það er stefna Reykjavíkurborgar og hluti að aðgerðaráætlun í úrgangsmálum að minnka losun úrgangs.
Taflan sýnir áætlaða hirðu á gráum, spartunnum og bláum tunnum fyrstu viku nýs árs.
| Dagur | Áætlað hirðusvæði (gæti breyst um dag) |
| 4. jan | Miðbær að Nóatúni |
| 5. jan | Austurbær, Hlíðar, Lækir, Mýrar, Holt og Tún |
| 6. jan | Austan Kringlumýrarbrautar, Teigar, Sund, Vogar |
| 7. jan | Austan Kringlumýrarbrautar Lönd og Gerði. Breiðholt |
| 8. jan | Breiðholt, Árbær, Grafarholt og Kjalanes |
| 9. jan | Öll borgin - GRÆN TUNNA undir plast |
| 11. jan | Grafarvogur |
| 12. jan | Vesturbær að Lækjargötu |
Grá tunna undir blandaðan úrgang verður tæmd á 14 daga fresti að jafnaði. Þetta er til samræmis við flest önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu en síðustu ár hefur gráa tunnan verið losuð á 10 daga fresti í Reykjavík. Tilgangur þessar breytinga er að mæta þeirri rúmmálsminnkun sem söfnun plasts í sér tunnu við heimili leiðir af sér en síðan í október hafa Reykvíkingar getað pantað græna tunnu undir plast við heimili. Með flokkun eykst endurvinnsla plasts og magn blandaðs úrgangs sem fer til urðunar minnkar.
Hirða bláu tunnunar undir pappírsefni og grænu tunnunnar undir plast breytist. Bláa tunnan verður tæmd á 21 daga fresti að jafnaði í stað 20 daga áður. Græna tunnan undir verður einnig losuð á 21 daga fresti í stað 28 daga eins og verið hefur. Íbúar geta valið um að fá tunnu undir plast og pappír við heimili sitt gegn gjaldi eða að fara með plastið á grenndar- eða endurvinnslustöðvar SORPU bs.
Þar sem lítið magn af úrgangi fellur til hafa íbúar í sérbýli val um að fá sér spartunnu undir blandaðan úrgang og lækkað þannig gjöld fyrir meðhöndlun úrgangs. Hún er grá og tekur helmingi minna magn eða 120 lítra í stað 240 lítra eins og hefðbundin tunna. Hirða spartunnunnar mun færast í 14 daga að jafnaði úr 10 dögum og verður hún hirt á sama tíma á gráa tunnan. Íbúar í fjölbýlum geta endurskoðað fjölda grárra tunna og fækkað þeim ef tilefni er til og greitt þannig lægri gjöld. Oft má fækka gráum tunnum í fjölbýlishúsum þar sem tunnur eru samnýttar og getur þá skapast svigrúm til að fá græna og bláa tunnu undir endurvinnslusefni.
Byrjað verður að hirða samkvæmt nýju fyrirkomulagi þann 4. janúar næstkomandi. Þar sem um töluverðar breytingar á fyrirkomulagi hirðu er að ræða verður ekki gefið út hefðbundið sorphirðudagatal fyrr en reynsla er komin á það. Þangað til munu upplýsingar um áætlað hirðusvæði verða sett inn á heimasíðu borgarinnar vikulega. Íbúar geta jafnframt haft samband hafi þeir fyrirspurnir um hirðu í síma 4 11 11 11 eða sent tölvupóst á netfangið sorphirda@reykjavik.is. Frekari upplýsingar um hirðu og tunnur sem standa íbúum í Reykjavík til boða er að finna á síðunni www.ekkirusl.is.