Styrkur svifryks (PM10) verður líklega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag, miðvikudaginn 22. apríl en í dag er hægur vindur, götur þurrar og engar líkur á úrkomu. Fólk er einnig hvatt til að fylgjast vel með loftgæðum í þurrviðrinu, sem spáð er næstu daga.
Klukkan 14 var hálftímagildi svifryks við mælistöðina á Grensásvegi 122 míkrógrömm á rúmmetra og 80 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöð sem staðsett er við Bíldshöfða 2. Sólarhrings heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.
Næstu daga er búist við að þurrviðri og auknum vindi sem getur þyrlað upp ryki. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.
Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á og annarra mengandi efna á www.reykjavik.is/loftgaedi. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík m.a. mælistöð á Grensásvegi. Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er nú staðsettar við leikskólann Öskju við Nauthólsveg 87 og í Ártúnsbrekku við Bíldshöfða 2.
Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu reksturs og umhirðu borgarlands hófst hreinsun á götum og hjóla- og göngustígum í byrjun apríl. Ekki er hægt að hreinsa götur og stíga þegar líkur eru á frosti.