Borgarstjóri setti Barnamenningarhátíð í Eldborgarsal Hörpu í morgun ásamt fullum sal af nemendum í 4. bekk grunnskólanna sem sungu lagið Allt sem skiptir máli með Sölku Sól og Gnúsa Yones.
Á Barnamenningarhátíð sem standa mun fram á sunnudag verður boðið upp á 120 viðburði um alla borg fyrir krakka á aldrinum 2 - 16 ára. Viðburðir verða á öllum listasöfnum, í bókasöfnum, menningarmiðstöðvum og í Ráðhúsinu. Þá verður að venju mikið um að vera í Ævintýrahöllinni í Iðnó. Ókeypis er á alla viðburði.
Við setningarathöfnina trúði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri börnunum fyrir því að honum fyndist þetta skemmtilegasta borgarhátíðin - og það væri af því börn væru skemmtilegasta listafólkið. Þá hvatti hann fjórðu bekkinga til að fjölmenna á viðburði Barnamenningarhátíðar og taka með sér foreldra, vini, frænkur og frændur.
Opnunaratriði Barnamenningarhátíðar var dansinn Stjörnustríð 2 sem fötluð börn úr Klettaskóla og Íslenski dansflokkurinn sýndu við mikinn fögnuð áhorfenda.
Hápúnktur opnunarhátíðarinnar var svo þegar Salka Sól og Gnúsi Yones stigu á svið og sungu með börnunum lag sem varð til úr réttindaóskum fjórðubekkinga. Þar urðu óskir þeirra um jafnrétti, frið, ást og öryggi efstar á blaði og um það fjallar textinn í þessu skemmtilega lagi - Það sem skiptir máli. Börnin tóku undir fullum hálsi og lyfti upp orðunum í viðlaginu.