Ársreikningur 2014 - Rekstur samstæðu Reykjavíkurborgar jákvæður um 11 milljarða
Stjórnsýsla Fjármál
Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um rúma 11 milljarða króna. Þetta kemur fram í ársreikningi Reykjavíkurborgar sem lagður var fram til fyrri umræðu í borgarstjórn í dag.
Rekstrarniðurstaða samstæðunnar, A og B hluta, var jákvæð um 11.106 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 8.120 mkr. Rekstrarniðurstaðan er því 2.986 mkr. betri en gert var ráð fyrir. Helstu ástæður þessa má rekja til lækkandi vaxtagjalda Orkuveitu Reykjavíkur vegna lækkunar skulda fyrirtækisins og hækkandi eignaverðs hjá Félagsbústöðum.
Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 2,8 milljarða. Helstu ástæður þess skýrast af ytra umhverfi. Launakostnaður jókst um tæpan milljarð á árinu, gjaldfærsla vegna lífeyrisskuldbindinga fór rúmlega milljarð fram úr áætlun og reiknað var með meiri tekjum af sölu á byggingarétti sem varð rúmum milljarði lægri en áætlað var.
Niðurgreiðsla skulda samstæðunnar gengur vel og samkvæmt áætlun. Skuldsetningarhlutfall borgarinnar er 104%, en lögboðið viðmið eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga er 150%. Séu skuldir Orkuveitu Reykjavíkur taldar til skulda samstæðu borgarinnar hefur skuldahlutfallið lækkað úr 327% árið 2010 í 216%. Skuldir Orkuveitunnar eru því miklar en niðurgreiðsla gengur hratt. Egiginfjárhlutfall samstæðunnar styrkist á milli ára og fer úr 40% í 43%. Arðsemi eigin fjár var 5,8% á síðasta ári.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir ýmislegt jákvætt í ársreikningi en um leið þurfi að vakta reksturinn þótt borgarsjóður standi vel. „Kjarasamningarnir voru dýrir og það sést í bókum borgarinnar. Það eru ýmis teikn á lofti í ytra umhverfinu sem við þurfum að vera á varðbergi gagnvart. Á heildina litið gengur reksturinn þó vel, skuldir eru að lækka, tekjur að aukast og þjónustan sömuleiðis,“ segir Dagur.
Staða A-hluta Reykjavíkurborgar er sterk og er skuldsetningarhlutfall A-hlutans samkvæmt sveitarstjórnarlögum 77% og helst óbreytt á milli ára. Eiginfjárhlutfall A-hluta er áfram sterkt eða 57,6%.
Nánari upplýsingar