Ánægja með þjónustu frístundaheimilanna

Skóli og frístund

""

87% foreldra sem eiga barn á frístundaheimilum borgarinnar eru ánægðir með þá þjónustu sem börn þeirra fá. 

87% foreldra sem eiga barn á frístundaheimilum borgarinnar eru mjög eða frekar ánægðir með þá þjónustu sem börn þeirra fá. 94% foreldra telja að barninu þeirra líði vel á frístundaheimilinu og 90% eru ánægð með samskipti við starfsfólkið. Þá eru 82% foreldra ánægð með viðfangsefni barnsins á frístundaheimilinu, en minnst ánægja er með húsnæði eða 62% að jafnaði.



Þeir foreldrar sem voru ánægðastir með frístundaheimilin töldu viðfangsefnin fjölbreytt og áhugaverð, voru ánægð með aðstöðu frístundaheimilisins, viðmót starfsfólks og umhyggju þeirra í garð barnsins. Óánægju foreldra má helst tengja við að viðfangsefni séu ekki nægilega áhugaverð, skort á eftirliti og/eða öryggi frístundaheimilis, leikaðstöðu og húsnæði. 



Spurningakönnunin var send til foreldra 3.427 barna á frístundaheimilum í febrúar og var svarhlutfallið 57%. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar í skóla- og frístundaráði 3. júní en sams konar könnun var gerð 2013 og voru þá niðurstöður mjög sambærilegar.



Hvert frístundaheimili borgarinnar hefur nú fengið niðurstöður fyrir sig sem nýttar verða til að rýna í daglegt starf og gera umbætur þar sem þörf er á.

Sjá könnunina.