Alzheimerkaffið verður í félagsstarfi Hæðargarðs fimmtudaginn 19. mars klukkan fimm síðdegis. Aðgangseyrir er 500 krónur og allir eru velkomnir.
Ágúst Óskar Gústafsson heimilislæknir flytur frumsamið lag sitt „Opnaðu augun“ sem hann tileinkar þeim sem glíma við alzheimersjúkdóminn. Hann flytur lagið með aðstoð Sísíar Ástþórsdóttur háskólanema og söngkonu.
Alzheimerkaffi, sem haldið er annan hvern fimmtudag í Hæðargarði, er fyrir fólk með alzheimer eða aðra minnissjúkdóma, aðstandendur þeirra og alla aðra sem hafa áhuga. Markmiðið er að gefa fólki tækifæri til að koma saman, opna umræðuna um erfiðleika fólks með þennan sjúkdóm og gefa þeim og aðstandendum kost á að hitta aðra sem glíma við svipaðan vanda.
Einnig er markmiðið að veita ráðgjöf, fræðslu, spjalla, syngja, gleðjast og eiga gæðastundir. Boðið er uppá kaffi og meðlæti.