Áhrif verkfalls hjúkrunarfræðinga á heimahjúkrun

Velferð

""

Áhrif verkfalls hjúkrunarfræðinga hefur frekar lítil áhrif á heimahjúkrun velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

Hjúkrunarfræðingar hjá heimahjúkrun velferðarsviðs sem hafa verkfallsrétt eru um 20.  Hluti þeirra hefur fengið undanþágu til starfa, hvort sem er á dagvinnutíma eða á kvöldin svo áhrif verkfalls eru lítil hjá heimahjúkrun.  Auk þeirra starfa um 17 hjúkrunarfræðingar  samkvæmt  samningi  Reykjavíkurborgar og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og þeir eru ekki í verkfalli. 

Áhrifanna gætir fyrst og fremst  í afgreiðslu nýrra beiðna. Heimahjúkrun Reykjavíkurborgar fær um 120 beiðnir um þjónustu í hverjum mánuði en um 70% beiðna koma frá Landspítala.  Vegna verkfallsins verður ekki  hægt að afgreiða beiðnir eins og áður og mun stór hluti þeirra því bíða meðan verkfall varir.

Heimahjúkrun í Reykjavík þjónar einnig Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ á kvöldin og um helgar. Heimahjúkrun þjónar á hverjum tíma um 1100 íbúum á þjónustusvæðinu en hjá henni starfa einnig sjúkraliðar auk hjúkrunarfræðinga.