Áhersla á góð samskipti barna og unglinga

Skóli og frístund

""
Á degi gegn einelti í næstu viku verður ýmislegt gert í skólum borgarinnar til að kenna góð samskipti. 
Starfshópur um vinsamlegt samfélag hefur jafnan undirbúið dag gegn einelti, s.s. með því að sérhanna endurskinsmerki, veggspjöld eða fræðsluefni til að kveikja umræður. Þá  hefur verið reift myndböndum sem börn og ungmenni hafa tekið þátt í að framleiða sem varpa ljósi á hvað einelti er og hvernig megi vinna gegn því.
 
Að þessu sinni hafa verið gerð nokkur myndbönd sem sýna aðstæður sem eru flestum börnum vel kunn. Myndböndin skiptast í tvo flokka, fyrir yngri börn ( 5 – 10 ára)  og fyrir eldri börn.  Ætlunin er að kennarar horfi á myndböndin með börnunum og ræði efni þeirra, en þeim fylgja umræðupunktar. Myndböndin fyrir yngri börnin eru unnin af Mixtúru, myndveri SFS, en myndböndin fyrir eldri börnin eru  gerð af krökkum í Laguó-Media í Laugalækjarskóla undir handleiðslu Þórunnar Vignisdóttur. Nemendur í Háaleitisskóla tóku þátt í gerð myndbanda fyrir yngri börn undir leiðsögn Iðunnar Pálu Guðjónsdóttur.

Sjá myndböndin 



Í tengslum við dag gegn einelti 8. nóvember stendur starfshópur um vinsamlegt samfélag einnig fyrir námskeiði um samskipti og félagsfærni stúlkna, sem haldið verður 13. nóv. Nú hafa 140 starfsmenn SFS skráð sig á námskeiðið.