Tímagjald í bílahúsum Bílastæðasjóðs hefur verið óbreytt í 13 ár en nú hefur verið ákveðið að hækka gjaldið. Tímagjaldið verður 150 krónur fyrir fyrsta klukkutímann og 100 kr. á klst. eftir það. Breytingin tekur gildi 1. mars n.k.
Þrátt fyrir þessa hækkun er margfalt ódýrara að leggja í bílahúsum í Reykjavík en í höfuðborgum hinna Norðurlandanna. Í samanburði sem mbl.is gerði á nýja gjaldinu í Reykjavík er 3,5 til 7 sinnum dýrara að leggja í stæði í Osló, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi, en í Reykjavík. Sjá frétt > Ódýrara að leggja í Reykjavík.
Kolbrún Jónatansdóttir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs segir meginástæðuna fyrir hækkuninni vera taprekstur á bílahúsunum undanfarin ár, þrátt fyrir að tekist hafi að ná upp betri nýtingu á skammtímastæðum. Reykjavíkurborg rekur 7 bílahús fyrir 1.140 bíla. Sjá nánar á www.bilahus.is
Mánaðaráskrift í bílahúsum hækkar einnig
Mánaðargjald fyrir langtímastæði í bílahúsum hækkar einnig um 12,5%. Það er mismunandi eftir staðsetningu húsanna og nýtingu þeirra, en eftir breytingu kostar mánaðarkort frá 4.500 til 11.900 kr.
Ódýrast er að vera með mánaðaráskrift að langtímastæði á Vitatorgi en dýrast í Ráðhúskjallaranum:
- Vitatorg kr. 4.500,
- Bergstaðir efri hæð kr. 6.300,
- Stjörnuport kr. 6.300,
- Kolaport kr. 7.200,
- Traðarkot kr. 7.200,
- Bergstaðir neðri hæð kr. 9.900,
- Vesturgata kr. 11.200,
- Ráðhús kr. 11.900.
Svo í borg sé leggjandi - Gjaldsvæði 1 stækkað
Gjaldsvæði 1 verður einnig stækkað og frá 1. mars mun það ná til Hverfisgötu, Grettisgötu, upp Skólavörðustíg og út Tryggvagötu. Megintilgangurinn með breytingunni er að auðvelda þeim sem þurfa að sinna erindum í miðborginni að finna stæði, en vonast er til að langtímanotendur bílastæða færi sig á ódýrari stæðin við jaðar miðborgarinnar. Það má því segja að einkunnarorð Bílastæðasjóðs – svo í borg sé leggjandi – séu höfð að leiðarljósi við breytingarnar. Kolbrún segir að breyting á gjaldsvæðinu hafi ekki nein áhrif á handhafa íbúakorta.