Meginniðurstaða stærðfræðiskimunarinnar Talnalykils sem lögð var fyrir nemendur í 3. bekk í grunnskólum borgarinnar í nóvember 2014, sýnir að þorri þeirra eða 94%, teljast ólíklegir til að þurfa sérstakan stuðning í stærðfræði.
5,6% nemenda teljast hins vegar þurfa sérstakan stuðning. Það er 0,2% prósentustigum lægra en hlutfall ársins 2013. Sé litið lengra til baka er þetta lakari niðurstaða en árið 2012 sem var besta ár í sögu skimunarinnar en betri niðurstaða en á árunum 2009 - 2011.
73% þeirra nemenda sem tóku prófið náðu settu viðmiði í þrepi I og teljast því vera ólíklegir til að þurfa á sérstakri aðstoð að halda í stærðfræði. Um 17% nemenda náðu settu viðmiði í þrepi II og eru ekki í mikilli áhættu hvað varðar námsörðugleika í stærðfræði. Um 10% nemenda fóru í gegnum allt prófið og af þeim eru 4% sem eru heldur ekki líkleg til að þurfa á stuðningi að halda. Það þýðir eins og áður sagði, að tæp 6% eru líkleg til að þurfa stuðning. Mismunandi var eftir skólum hve margir nemendur eru líklegir til að þurfa stuðning í stærðfræði, allt frá engum nemanda upp í 25%.
Talnalykill var lagður fyrir nemendur í 34 grunnskólum af þeim 37 í Reykjavík sem hafa 3. bekk. Skólarnir þrír sem ekki tóku þátt eru allir sjálfstætt starfandi. Tæp 98% nemenda í 3. bekk í Reykjavík tóku þátt í stærðfræðiskimuninni nú og er þátttakan sú mesta í sögu skimunarinnar. Markmið stærðfræðiskimunarinnar er að finna þá nemendur sem eru líklegir til að lenda í vanda og bregðast skjóttt við með einstaklingsáætlun og/eða sérstökum stuðningi.