50 íbúðir fyrir eldri borgara í Hraunbæ

Skipulagsmál

""

Allt að 50 íbúðir fyrir eldri borgara munu rísa á óbyggðri lóð vestan við Hraunbæ 103 – 105 í Árbæ. Bætt verður við nýrri lóð vestan megin þar sem heimilt verður að reisa 6 – 10 hæða byggingu. 





Tillaga að breyttu deiliskipulagi Hraunbæjar 103- 105 hefur verið kynnt fyrir borgarráði. Nýbyggingarsvæðið er hugsað sem viðbót við Hraunbæ 103 – 105 en þar eru íbúðir fyrir eldri borgara, og þjónusta. Núverandi íbúðaturnar eru þrír og eru þeir sex, átta og tíu hæðir en þar eru 47 íbúðir,  67 til 88 fermetrar að stærð. Að auki er á reitnum þjónustubygging í eigu Reykjavíkurborgar, 500 fermetrar að stærð. Íbúar nýju byggingarinnar munu geta nýtt sér þjónustu þar en hugmyndin er að gefa möguleika á stækkun þjónustubyggingarinnar lítillega til vesturs.

Gert er ráð fyrir því að nýja byggingin stallist frá suðri til norðurs þar sem byggingin verður hæst.

Samkvæmt tillögunni er mikilvægt að varðveita eins og kostur er þann gróður sem fyrir er á reitnum, sérstaklega gróðurbelti meðfram Bæjarhálsi ásamt því að lagt er til að gróður verði þéttur meðfram Bæjarhálsi og Höfðabakka.