350 íbúðir geta risið við Öskjuhlíð

Skipulagsmál

""

Háskólagarðar HR rísa við Nauthólsveg í Öskjuhlíð.

Allt að 350 litlar og meðalstórar íbúðir munu rísa við rætur Öskjuhlíðar samkvæmt breyttri deiliskipulagstillögu Kanon arkitekta, sem borgarráð hefur samþykkt að setja í auglýsingu. Með uppbyggingu byggðar á þessum stað hyggst Háskólinn í Reykjavík styrkja baklandið fyrir fjölþætta starfsemi þekkingarsamfélags og framtíðaruppbyggingu háskólans á svæði við Nauthólsveg.

Með deiliskipulaginu er afmörkuð ein ný lóð, sem verður samtals um 3.2 ha að stærð. Á svæðinu verður heimilt að byggja allt að 350 íbúðir og er miðað við frekar litlar íbúðir en einnig einstaklingsherbergi með sameiginlegri aðstöðu. Það er Háskólinn í Reykjavík sem mun standa fyrir uppbyggingunni á þessum frábæra stað í grennd við skólann. Byggðin verður almennt  tvær til fjórar hæðir en ein hæð syðst. Á jarðhæð íbúðarhúsa meðfram Nauthólsvegi er gert ráð fyrir möguleika á verslun og þjónustu.  Hægt verður að hafa kjallara undir byggingum. Þá munu inngarðar prýða svæðið.

Íbúðirnar eru ætlaðar til leigu og tímabundinnar búsetu fyrir nemendur og starfsfók fyrirtækjanna sem starfa hjá HR og þekkingarfyrirtækjum  í nágrenninu.  Syðst á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir dagvöruverslun í þjónustuhúsnæði og leikskóla.

Í deiliskipulaginu er áhersla lögð á vistvænar samgöngur í samræmi við Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030 og verður fjölda bílastæða breytt frá núgildandi deiliskipulagi í samræmi við það.

Fjölbreytt borgarumhverfi

Samkvæmt deiliskipulaginu verður yfirbragð nýrrar byggðar fjölskrúðugt borgarumhverfi. Til norðurs og vesturs, að borginni og Nauthólsvegi  rís randbyggð borgarhúsa sem myndar götumynd og vel afmarkað bæjarrými í góðum hlutföllum. Til austurs eru stakstæð hús sem lagast að útivistarsvæði. Byggðin mun einkennast af nútímalegri byggð sem fellur vel að umhverfinu og útivistarsvæðinu í Öskjuhlíð.

Gróðursæl útirými

Í lýsingu skipulags í greinargerð er sagt að áherslan verði lögð á aðlaðandi og gróðursæla ásýnd. Efnisval á að vera vandað og samræmt.   Göturýmin verða vistleg og lífleg sem og vistgötu- og torgrými sem markast af byggingum svæðisins milli reita.  Inngarðsrýmin verða skjólgóð og friðsæl en byggingar hvers reits A, B og C afmarka þau.

Frá norðri til suðurs, um reitina fjóra, fikrar sig innri stígur sem tengir svæðið saman og eykur á félagsleg tengsl. Stígurinn þjónar einnig sem aðkoma að stakstæðu húsunum og meðfram honum safnast ofanvatn.

Inngarðar vestan innri stígs munu hafa formfast borgaryfirbragð í anda randbyggðar, þar sem hver garður hefur sín einkenni og svip með aðstöðu fyrir útiveru, leiki, matjurtarækt, listskreytingar, gosbrunna og heitar setlaugar, svo eitthvað sé nefnt. Eystri útirýmin hafa náttúrulegra yfirbragð þar sem undirhlíðar Öskjuhlíðar “flæða” inn í garða sem geislast að útivistarsvæðinu.

Núverandi skóla- og leikskólabyggingar Hjallastefnu verða fluttar á aðra lóð og nýttar þar til framtíðar fyrir þá starfsemi eða einhverja aðra starfsemi.

Háskólinn í Reykjavík breyting á deiliskipulagi